Vafraðu um


Tenglar

Sleðarnir

Nafn:

Myndir sendist með lýsingu á netfangið

Staðsetning:

Akranes

Um:

Myndir og fréttir af sleðaferðum og fl
Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 91273
Samtals gestir: 24544
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:59:31

21.02.2011 20:36

Miðnæturferð í Ljósufjöll




Við tókum skyndiákvörðun á föstudagskvöld og ákváðum að skella okkur í smá sleðaferð. Við lögðum á stað tveir af skaganum klukkan 8 um kvöldið og rúlluðum vestur í Ljósufjöll Í Frábæru veðri og ekki skemmdi fyrir að tunglið var fullt, svo það var mikið tunglskin. Það þurfti aðeins að þræða á leiðinni upp en annars fínn snjór uppi, við náðum aðeins að skvetta úr klaufunum og fá útrás eftir full langan sumarsvefn. Það leiðindaratvik átti sér stað á leiðinni niður að það vantaði eitt stykki GPS-tæki á sleðann svo við þurftum að snúa við og byrja að leita... Og við leituðum og leituðum og leituðum og viti menn, tækið fannst uppí einni brekkunni þökk sé tunglsins. Keyrðir voru um 40km og var þetta snilldar kvöld og hefði vel getað verið öll nóttin, en það var því miður ekki í boði sökum anna..Heimkoma var um kl 2 um nóttina og báðir sleðarnir heilir... emoticon
Komnar nýjar myndir í Albúm..





27.01.2011 19:05

Skrapp Norður á Dranga með vinnufélaga.

Ég vildi bara upplýsa að ég fór mína fyrstu sleðaferð þetta season þann 21-23 jan og svo heppilega vildi til að vinnufélagi minn bauð mér að kíkja með sér Norður á Dranga.
 
Við lögðum af stað stuttu eftir vinnu og tókum sleðana af uppá steingrímsfjarðarheiði um 2 aðfaranótt föstudags og þar sem að það var slæmt skyggni þá tók það okkur 4 klukkutíma að komast á áfangastað með einni veltu og brotnu gleri en þegar að niður var komið hjá dröngum beið okkar ágætis veður og flottur bústaður sem kynda þurfti upp með eldivið farið í bólið sirka 9 um morguninn.

Það var lítið leikið sér á sleðunum en á laugardeginum þurftum við að koma þeim ofar í hlíðina útaf því hvað hafði hlánað mikið og næstum allur snjór horfinn á jafnsléttu.

Sunnudaginn röltum við upp að sleðunum og fórum til baka sem tók okkur um 2 og hálfan tíma í góðu skyggni og þéttum og frekar rökum snjó þurftum að þræða fram hjá næstum hverju einasta vatni og mel sem fyrir okkur varð sem við keyrðum bara beint yfir á aðfaranótt föstudagsins.

En þessi ferð fram og til baka var um 100 km og mér persónulega þótti þetta virkilega flott að fá að sjá svona gamalt býli þótt við hefðum verið í nýlega byggðum sumarbústað mjög flottum en að lokum DJÖFULLI var gott að fá að taka aðeins í sleðann á svona lélegum vetri hérna Vestanlands.

Kveðja Gísli


26.03.2010 14:39

Landmannalaugar

emoticon Polarisferðinemoticon  þetta árið verður inní Landmannalaugar. við erum allavega 4  skaganum sem fara, vona að það verði samt fleiri innfrá. Svo í fyrramálið held ég að stefnan verði tekinn á mýrdalsjökul og beinnt inná fimmvörðuháls að kíkja á eitt stykki Eldgos. Síðan verða farnar leiðir um svæðið eftir leiðsögumönnum á svæðinu, svo um kvöldið verður Veisla á vegum Storms. svo verður tekinn smá renningur á sunnud. og svo heim. Ég reyni að setja einhverjar myndir inn eftir ferðina, Þ.e.a.s. ef einhver er ennþá að skoða Sleðasíður, Síðan styttist í páska og þá fara líklega menn að reyna að fara einhverja ferð, sjálfur verð ég fyrir vestan og fer þá kannski uppá snæfellsjökul. (Ekkert ákveðið)

22.02.2010 12:49

Loksins

Loksins Hafðist það að fara sleðaferð, Fórum á Snæfellsjökul á laugardaginn og fengum flott veður, reyndar ekki mikla sól. Það var mjög lítill snjór á jöklinum en við gátum samt flestir fengið útrás að ég held. Ekki skemmdi fyrir að við hittum líka trúlega hressasta mann Norðan Skarðsheiðar en hann gaf arctic cat sleðum sín atkvæði.... Ég setti inn nokrar myndir en vona bara að fleiri komi til með að berast.

19.02.2010 16:51

Sleðaferð

Jæja góðir hálsar, einhver orðrómur er um að menn séu að fara á Snæfellsjökul á morgunn.. veit ekki alveg hverjir ætla og kl hvað en persónulega þá finnst mér ekki vera neitt veður á morgun fyrir vestan, væri frekar til í að skoða sunnud. En það kemur í ljós... endilega kommentið ef þið hafið áhuga en ég held allavega að rabbi og eybi ætla að fara.


25.01.2010 17:48

Video!!!!!!

Jæja það hafðist af að klippa til videoið af snæfellsjökli 2. jan. allir að kíkja, það er í litlum gæðum svo maður er ekki lengi að sækja það...

17.01.2010 22:45

Breyting á sleðum vegna snjóleysis

Unnar Valgeirs sendi okkur þessar myndir og vill með því varpa til okkar þeirri spurningu að hvort
þetta sé eitthvað sem við á Íslandi verðum að fara að skoða með sleðana okkar vegna viðvarandi snjóleysis sem virðist ætla að plaga okkur hér á landi.

Endilega látið í ljós skoðanir ykkar á þessu máli í formi kommenta hér fyrir neðan.




15.01.2010 15:31

Langjökull helgina 16-17 Janúar

Helgin 16-17.Janúar 2010

ATH 

Snævar er að fara í Húsafell í kvöld 15. janúar og ætlar að fara upp að langjökli og kanna aðstæður menn geta hringt í hann til að fá fréttir, ef það áhugi fyrir jöklaferð á morgun þá er síminn hjá Snævari er 8463304

09.01.2010 16:59

myndir frá helginni 2-3. janúar

eitthvað hefur verið að bætast við myndir í myndaalbúmum fyrir þessa daga, bæði á Snæfellsjökli og Langjökli.

ég minni fólk á að vera duglegt að láta mig vita ef það er að fara eitthvað og er til í að leyfa öðrum að vita, svo ég geti tilkynnt brottfaratíma og fl hér á síðunni.
Og svo er um að gera að vera dugleg með myndavélina, það er bara geggjað að geta skoðað myndir frá svona ferðum.

04.01.2010 21:05

Límmiðar

Vil bara minna menn á að límmiðar með lógói okkar er til sölu hjá Sjúdda.

Límmiðarnir eru til sölu og verða afhentir á Háholti 25 en það væri ´líka gott ef þið hringið á undan ykkur ef hann er að vinna en síminn hjá Sjúdda er 8997445

koma svo, ekki ætlum við að láta gott framtak hjá Sjúdda lenda á honum einum. (hann er búinn að leggja sjálfur út fyrir þessu)

stór miði á 1000kr og lítill miði á 500 kr



03.01.2010 11:49

Langjökull 2.janúar 2010

Gísli Jens Guðmundsson (Gísli rakari) sendi okkur þessar 3 myndir og fylgdi þessi lína með.

"Myndir teknar á Langjökli 2 jan 2010 Jón Valgeir á gráa sleðann
kv Gillarinn"

Svo komu nokkrar myndir frá Guðna og Sverrir

Gaman væri að fá nánari lýsingu á aðstæðum á jöklinum, þið sem voruð á Langjökli endilega kommentið hér fyrir neðan og látið okkur vita hvernig aðstæður hafi verið á jöklinum.

En við sem fórum á Snæfellsjökul viljum láta vita að oft hefur verið meiri snjór í kringum Snæfellsjökul á þessum tíma árs, en flenninóg pláss til að leika sér.

Mynd frá Langjökli

02.01.2010 21:56

Snæfellsjökull 2.janúar

Fyrsta sleðaferðin á árinu 2010.  geggjuð ferð á Snæfellsjökul,
við hefðum ekki getað fengið betra veður.

fórum 7 af skaganum og hittum svo fleiri á jöklinum.

Allir skiluðu sér svo aftur. án teljanlegra meiðsla. nokkrir marblettir kannski

myndir komnar inn endilega kíkið á þær.

en hér fyrir neðan er mynd af sleðanum hans Unnars.. Hörku græja


01.01.2010 23:21

Laugardagur 2.janúar

förum nokkrir upp úr 9 í fyrramálið frá Olís

stefnan er sett á Snæfellsjökul,

29.12.2009 22:26

Lynxinn er kominn í gang

Nú má fara að snjóa.. lynxinn fór í gang í kvöld.

Nýjar sveifaráspakkdósir, reedventlar, heddhringir, pakkningar, stimplar skoðaðir, reyndust í fínu lagi.
Nú þarf bara að fá tækifæri á að prufa kvikindið...

29.12.2009 09:33

sleðaferð

Nú er manni farið að langa til að taka í sleðann....

hvernig væri að við myndum reyna að stefna á smá game 2. eða 3. janúar. Þar að segja ef veður og snjóalög leyfa.

við þurfum nú ekki merkilegar brekkur til að prufa græjurnar og ná mesta hrollinum úr sér.